» Kennarar
UM FAXABÓL

 
Reiðskólinn Faxaból hefur starfað síðan árið 2000. Frá upphafi hefur verið lögð rík áhersla á öryggisbúnað skólans, hjálmar eru þeir bestu sem völ er á,  ístöðin  eru svokölluð öryggisístöð (búr) sem eru lokuð í tána og því hentug öllum, stórum og smáum..

 
Byrjendur notast einungis við svokallaðar reiðdýnur sem eru virkislausir hnakkar. Helstu kostir þessara reiðdýna er að í þeim situr nemandinn nær hestinum og á  auðveldara með  að fylgja hreyfingum hestsins. Þá gera dýnurnar kraftaverk í jafnvægisþjálfun nemenda sem er grunnurinn að allri frekari þjálfun. Hestar skólans eru sérvaldir og margir þeirra verið með okkur frá upphafi. Þeir eru þægilegir í umgengni  og vita nákvæmleg til hvers er af þeim ætlast.  Hver hestur getur kennt nemandanum eitthvað nýtt og leggjum við því áherslu á að nemendur skólans prófi sem flesta þeirra.  Skólinn leggur mikla áherslu á að hver og einn nemandi fái kennslu við sitt hæfi, því er nemendum strax í upphafi námskeiðs raðað í hópa eftir getu og þeim sett verkefni sem eflir sjálfstraust og færni í íþróttinni.

 
Í Faxabóli á að vera gaman og þar á öllum að líða vel.

 

©  2006 Faxabol.is    |    Vefhönnun Design EuropA